32. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 17. desember 2020 kl. 10:10


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 10:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 10:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 10:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 10:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 10:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 10:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 10:10
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 10:10

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:10
Fundargerðir 27. til og með 31. fundar voru samþykktar.

2) 372. mál - virðisaukaskattur o.fl. Kl. 10:10
Nefndin ákvað að flytja breytingartillögu við 3. umræðu um málið þar sem bætt yrði við frumvarpið köflum um breytingu á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda annars vegar og lögum um tryggingagjald hins vegar.

3) 31. mál - ríkisábyrgð á viðspyrnulán til atvinnuþróunar Kl. 10:10
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 12. janúar 2021 og að Willum Þór Þórsson yrði framsögumaður þess.

4) 213. mál - virðisaukaskattur Kl. 10:10
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 12. janúar 2021 og að Bryndís Haraldsdóttir yrði framsögumaður þess.

5) 360. mál - græn atvinnubylting Kl. 10:10
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 12. janúar 2021 og að Oddný Harðardóttir yrði framsögumaður þess.

6) Önnur mál Kl. 10:25
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:25